Morgunvaktin

Frægasta sjóorrustan við Ísland, Berlínarspjall og HM

85 ár voru á sunnudag liðin frá því ein sögufrægasta sjóorusta síðari heimsstyrjaldarinnar fór fram vestur af Reykjanesi, milli orrustuskipanna Bismarck og Hood. Við rifjuðum þá sögu upp í þættinum í dag með Gunnari Alexander Ólafssyni hagfræðingi, sem þekkir söguna vel.

Arthúr Björgvin Bollason var á sínum stað með Berlínarspjall. Þýsk stjórnmál voru til umfjöllunar, en margir velta fyrir sér miklu fylgi AfD flokksins í fylkingu Sachsen-Anhalt. Flokkurinn boðar meðal annars róttækar breytingar í menntamálum.

Heimsmeistaramót karla í fótbolta hefst eftir rétt rúmar tvær vikur. Illugi Jökulsson hélt áfram segja forvitnilegar sögur af fótbolta og fólki í tengslum við mótið og í dag var J-riðill á dagskrá. Þar er meðal annars stórveldið Argentína - en líka Jórdanía, sem á sér merka sögu.

Tónlist:

Miles Davis og fleiri - Moon dreams.

Miles Davis og fleiri - When I fall in love.

Birt

26. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,