Morgunvaktin

Siðferði og traust, stafræn þróun og bækur

Við ræddum áfram um pólitíska hlið Epstein-skjalanna og áhrifin á samfélög og almenning, siðferði og traust. Nanna Hlín Halldórsdóttir, rannsóknarlektor við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands, talaði við okkur.

Stafræn tækni og eldra fólk voru til umfjöllunar. Á föstudag ræddum við þetta við ráðgjafa sem segir of langt hafa verið gengið í stafrænni þróun á of stuttum tíma og í dag forvitnuðumst við um hvað Björn Snæbjörnsson, formaður Landsambands eldri borgara, heyrir frá sínu fólki. Þessi mál koma mjög oft inn á borð sambandsins.

Íslensku bókmenntaverðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn Bessastöðum í kvöld. Við notuðum tilefnið og röbbuðum um bækur vítt og breitt til okkar komu tveir bókaormar; Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir og Starri Reynisson, þau sögðu okkur meðal annars frá góðum bókum sem þau hafa lesið nýlega.

Tónlist:

Haukur Morthens - Mambó.

John Denver - Perhaps love.

John Denver - Sunshine on my shoulders.

Sigrún Hjálmtýsdóttir - Hlustið góðu vinir.

Birt

11. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,