Morgunvaktin

Heimsglugginn, dýrtíð og Breiðavík

Nýjar landsstjórnir hafa verið myndaðar bæði í Færeyjum og á Grænlandi, og hugmyndir eru uppi um Bandaríkjamenn komi sér á upp herstöð í Narsarsuaq á Grænlandi. Þetta var til umræðu í Heimsglugganum með Boga Ágústssyni. Hann ræddi líka um gagnrýni Bandaríkjaforseta á páfann og um minningarstund samfélags gyðinga um helförina hér á landi.

Við fjölluðum um dýrtíð, verðbólgu og vísitölur.

Í síðasta hluta þáttarins var rætt við Birnu Mjöll Atladóttur, hótelstjóra á Breiðavík, um vorið, sumarið, samgöngur og ferðaþjónustu svo eitthvað nefnt. Hún fékk fyrstu bókunina fyrir almyrkvann í sumar fyrir tólf árum síðan.

Tónlist:

Ólafur Vignir Albertsson, Sigurður Björnsson, Kristinn Hallsson - Ég bið heilsa.

Mannakorn - Garún.

Ragnar Bjarnason - Það styttir alltaf upp.

Tríó Björns Thoroddsen, Andrea Gylfadóttir - Vorvindar glaðir.

Birt

16. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,