Morgunvaktin

Heimsglugginn, ASÍ 110 ára og sjórinn aldrei hlýrri

Í Heimsglugganum ræddi Bogi Ágústsson einkum um hernað Bandaríkjamanna gegn Íran og ástand mála í Miðausturlöndum. Hann lék líka hljóðbrot úr breska þinginu frá í gær. Umfjöllun um erlend málefni hófst þó á spjalli um gott gengi norska liðsins Bodø/Glimt í Meistaradeild Evrópu í fótbolti.

Alþýðusamband Íslands á 110 ára afmæli í dag. Auður Alfa Ólafsdóttir sérfræðingur hjá sambandinu sagði frá viðfangsefnum sínum sem snúa einkum réttlátum umskiptum í þeim breytta heimi sem leiðir af orkuskiptum og tækninýjungum.

Hitastig sjávar hefur ekki mælst hærra en í rúmlega hálfrar aldar samfelldri mælingasögu Hafrannsóknastofnunar. Steingrímur Jónsson haffræðingur hjá Hafró og prófessor við auðlindadeild HA fór yfir niðurstöðurnar.

Tónlist:

In my life - Bítlarnir,

When I´m sixty four - Björn Thoroddsen,

With a little help from my friends - Björn Thoroddsen,

I´m a loser - Björn Thoroddsen.

Birt

12. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,