
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Bogi Ágústsson ræddi við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing í Heimsglugganum. Þeir fóru yfir stöðuna í alþjóðamálum, stríð og frið.
Vilhjálmur Árnason heimspekingur kom svo í þáttinn en hann tekur þátt í umræðum á fundi þjóðaröryggisráðs í dag um áhrif upplýsingaóreiðu á lýðræði og þjóðaröryggi. Hann fjallar um skyldur stjórnmálamanna í heimi þar sem almenningur á erfitt með að greina hvað er satt og hvað ekki.
Hestar og knapar áttu svo hug okkar allan í síðasta hluta þáttarins. Það styttist í Landsmót hestamanna sem að þessu sinni er haldið á Hólum í Hjaltadal. Það er heilmikið mál að undirbúa svo mót eins og framkvæmdastjórinn Áskell Heiðar Ásgeirsson sagði okkur frá.
Tónlist:
Hljómar - Miðsumarnótt.
Lónlí blú bojs - Mamma grét.
Sigurður Ólafsson - Káti hestamaðurinn.
Sigurður Ólafsson - Meira fjör.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.