Morgunvaktin

Heimsglugginn, tækifæri á Norðausturlandi og bækur

Bogi Ágústsson ræddi við Ásgeir Brynjar Torfason, ritstjóra Vísbendingar, um rof í alþjóðakerfinu og efnahagslegar afleiðingar þess, verðsveiflur á gulli, silfri og bitcoin.

Styrkur hefur fengist til greina tækifæri til eflingar byggðanna frá Öxarfirði til Vopnafjarðar. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, fór yfir möguleikana.

Nýr formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, Anna Lea Friðriksdóttir, kom til okkar í síðasta hluta þáttarins. Hún var kjörin á dögunum og er fyrsta konan sem gegnir þessu virðulega embætti innan raða forleggjara bókaþjóðarinnar. Við spjölluðum um bækur - við gerum aldrei of mikið af því.

Tónlist:

Simon and Garfunkel - El condor pasa.

Placido Domingo - El condor pasa.

Ásgeir Jón Ásgeirsson - Trip to India.

Birt

19. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,