Morgunvaktin

Heimsglugginn, landgræðsla og dagþjálfun fyrir heilabilaða

Kosningar fara fram í Bretlandi í dag, meðal annars er kosið til þings í Skotlandi og Wales og til sveitarstjórna víða á Englandi. Bogi Ágústsson ræddi um kosningarnar þegar hann settist við Heimsgluggann. Gestur hans var Sólveig Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður.

Við fræddumst svo um Landgræðsluskóla GRÓ, en á tæpum tuttugu árum hafa 240 manns komið hingað til lands frá þróunarlöndum sem standa frammi fyrir landeyðingu og afleiðingum hennar í heimalöndunum. Nína Björk Jónsdóttir og Guðrún Guðjónsdóttir sögðu frá.

Fyrr í vikunni var tilkynnt Alzheimersamtökin fái frá stjórnvöldum til opna dagþjálfunarrými fyrir fólk með heilabilun. Tilgangurinn er mæta fólki með fyrstu einkenni heilabilunar þjónustu, og ekki er vanþörf á. Guðlaugur Eyjólfsson, framkvæmdastjóri samtakanna, kom í heimsókn.

Tónlist frá útsendingarlogg 2026-05-07

Joni Mitchell - The Last Time I Saw Richard.

Uppáhellingarnir - Vor í Reykjavík.

Carpenters - Yesterday Once More.

Birt

7. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,