Morgunvaktin

Heimsglugginn og stjórnmál í nútíð og fortíð

Bogi Ágústsson var með okkur, á dagskrá Heimsgluggans í dag voru tvö mál: dönsk ríkisstjórn og reiðin í Bretlandi vegna morðsins á Henry Nowak.

Á seinni tímanum fjölluðum við um stjórnmál, bæði nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar og alþingiskosningar á landshöfðingjatímabilinu.

Við slógum á þráðinn til Ómars Gunnarsson á Kópaskeri sem fór fyrir Óskalistanum í Norðurþingi og er kominn í meirihluta í sveitarstjórn.

Hrafnkell Lárusson sagnfræðingur kom svo til okkar og ræddi gömlu kosningarnar: Vissuði þá kaus fólk í heyranda hljóði og í skýrslum er tilgreint hver kaus hvern. Hægt er nálgast upplýsingarnar sem Hrafnkell ræddi um inni á vefnum heimildir.is.

Tónlist:

Kristinn Hallsson - Í dag skein sól.

Pálmi J. Sigurhjartarson - Höldum heim.

Pálmi J. Sigurhjartarson - She.

Birt

4. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,