Morgunvaktin

Kosningar í Ungverjalandi, olíukreppur og ljóðlist

Kosið verður í Ungverjalandi á sunnudag. Kannanir benda til valdatíð Orbans forsætisráðherra gæti verið á enda. Um kosningarnar, stjórnmálin í Ungverjalandi og Orban var fjallað í Heimsglugganum. Bogi Ágústsson ræddi við Gunnstein Ólafsson tónskáld sem lærði í Ungverjalandi á sínum tíma og þekkir vel til mála í landinu.

Vopnahlé við Persaflóa virðist í besta falli mjög brothætt, árásir Ísraela á Líbanon í gær hafa orðið til þess írönsk stjórnvöld segjast ekki munu opna umferð um Hormuz sund. Þar um fer fimmtungur olíu heimsins en þannig hefur það auðvitað ekki verið síðustu vikur og vegna þess ríkir olíukreppa. Óðinn Melsteð lektor í sagnfræði við Maastrict háskóla í Hollandi þekkir slíkar kreppur og ræddi við okkur.

Svo var fjallað um ljóðlistina. Hún er í brennidepli í Reykjanesbæ í dag og næstu daga; ljóða- og listahátíðin Skáldasuð á Suðurnesjum er hefjast. Gunnhildur Þórðardóttir ljóðskáld og skipuleggjandi sagði frá og fór með nokkur ljóð.

Tónlist:

Ólöf Arnalds - Vorkoma.

Hljómar - Er hann birtist.

Flowers - Glugginn.

Birt

9. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,