Jón Magnússon, formaður Samtaka vistheimilabarna, kom á Morgunvaktina. Tilefnið er umfjöllun um Bakkakot. Sem krakki og unglingur var Jón á vistheimilum hingað og þangað um landið og hefur nú í seinni tíð beitt sér í málefnum fólks sem þola mátti harðræði í vist á vegum hins opinbera.
Þýskir ráðamanna eru, sumir hverjir, ósáttir við hvernig fólk hagar lífi sínu; að það setji einkalífið í fyrsta sæti en ekki efnahagslífið. Um þetta hafa verið líflegar umræður í Þýskalandi upp á síðkastið. Arthur Björgvin Bollason sagði frá þessu og fleiru í Berlínarspjalli.
Loðnuvertíð er hafin. Hún hefur mikil áhrif á bæjarlífið þar sem landað er. Ekki síst í Vestmannaeyjum. Óskar P. Friðriksson, netagerðarmaður og ljósmyndari, spjallaði við okkur um vertíðarstemninguna sem enn lifir góðu lífi.
Tónlist:
Ellen Kristjánsdóttir - Engin önnur en ég er.
Diana Krall - Here lies love.
Medusa - Ókunnar kenndir.
Wolfgang Holzmair - Winterlied.
Ragnar Bjarnason - Loðnuvalsinn.
Erling Ágústsson - Oft er fjör í Eyjum.
Þrjú á palli - Það var hann Binni í Gröf.