Morgunvaktin

Íslenskur tónlistararfur aðgengilegur, Evrópumál og Úkraína

Yfir tólf þúsund íslenskar tónsmíðar eru aðgengilegar öllum á netinu. Verkefnið nefnist Nótnaveitan. Finnur Karlsson tónskáld og verkefnastjóri Nótnaveitunnar kom í þáttinn og ræddi um íslenska tónlist, tónskáld og tónlistararfinn.

Björn Malmquist sagði okkur tíðindi frá Evrópu. Kosningar fóru fram í Armeníu og Kósóvó um helgina. Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna var í Frakklandi og hélt þar ræðu sem vakti athygli, og Björn ræddi við tvo nemendur í Garðaskóla sem komu til Brussel til keppa í fjármálalæsi.

Zelensky Úkraínuforseti skrifaði Pútín Rússlandsforseta opið bréf fyrir helgi, og fór svo til Bretlands ræða við leiðtoga Bretlands, Þýskalands og Frakklands. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur ræddi í síðasta hluta þáttarins um stöðu mála í Úkraínu og Rússlandi.

Tónlist:

Ulf Lundell - Jorden till himlen.

Sigríður Thorlacius & Sönghópurinn við Tjörnina, Tómas R. Einarsson - Morgunn.

Antonio Sanchez, Edmar Castaneda, Bela Fleck - Walnut and Western.

Birt

8. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,