Morgunvaktin

Skipulagsmál og arkitektúr, Attenborough og barítónar

Hönnunarmars stendur sem hæst. Meðal þess sem boðið er upp á eru leiðsagnir arkitekta um ýmis hús sem eru í byggingu, og sum hver kannski umdeild eins og stundum vill verða. Við spjölluðum um arkitektúr og skipulagsmál þegar arkitektarnir Andri Gunnar Lyngberg Andrésson hjá Trípólí, Halldóra Vífilsdóttir hjá Nordic Office of Architecture og Ögmundur Skarphéðinsson hjá Hornsteinum komu í þáttinn.

David Attenborough er 100 ára í dag og því er fagnað víða. Fáir hafa haft eins mikil áhrif á meðvitund um náttúruna og hann.

Magnús Lyngdal var á sínum stað með umfjöllun um sígilda tónlist. Í dag voru það barítón-raddir sem áttu sviðið.

Tónlist:

Emilíana Torrini - Today has been ok.

Emilíana Torrini - Miss Flower.

Sigur Rós - Hoppípolla.

Birt

8. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,