• 00:27:20Niðurrif bygginga - Anna María Bogadóttir
  • 00:49:36Samfélagið á Ströndum - Finnur Ólafsson
  • 01:11:13Óperuendar - Magnús Lyngdal

Morgunvaktin

Niðurrif bygginga, mannlíf á Ströndum og óperur

Á hverri einustu mínútu er ein bygging einhvers staðar í Evrópu rifin og enn eru mikil áform um niðurrif bygginga í kortunum á Íslandi. Anna María Bogadóttir arkitekt og rithöfundur ræddi við okkur, hún telur bæði þurfi hugarfars- og kerfisbreytingar þegar kemur skipulagsmálum og arkitektúr.

Mannlíf á Ströndum á undir högg sækja. Fólki hefur fækkað í sveitarfélögunum þar þremur; Árneshreppi, Kaldrananeshreppi og Strandabyggð; fækkunin reiknast 33 prósent á aldarfjórðungi og það munar um minna. Fyrir liggja tillögur um eflingu byggðanna við vestanverðan Húnaflóa - við forvitnuðumst um þær og spjölluðum um lífið og tilveruna á Ströndum við Finn Ólafsson á Svanshóli í Kaldrananeshreppi.

Svo var það sígilda tónlistin. Magnús Lyngdal fjallaði um nokkrar óperur, við heyrðum brot úr óperum eftir t.d. Verdi, Wagner og Puccini, og í ýmsum flytjendum, t.d. Placido Domingo, Elinoru Buratto og Vínar-Fílharmoníunni.

Tónlist:

Lee Dorsey - Ya ya.

Lee Dorsey- Working in the coalmine.

Frumflutt

25. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Morgunvaktin

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,