Morgunvaktin

Sjómannadagurinn, mold og heilbrigði og sígild tónlist

Sjómannadagurinn er á sunnudag og hátíðahöld hefjast sums staðar á landinu strax í dag. Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, kom í þáttinn af þessu tilefni og spjallaði um sjómannadaginn, sjómannslífið og verkefni Sjómannadagsráðs.

Mold er okkur alveg ótrúlega mikilvæg - hún er ein helsta undirstaða lífs á landi. Um moldina var haldið heilt málþing í gær, þar talaði, auk annarra, Kristín Sigurðardóttir læknir, hún kom til okkar og spjallaði um moldina, náttúruna, heilsuna og lífið.

Svo var það sígilda tónlistin. Í dag sagði Magnús Lyngdal okkur frá breska sellóleikaranum Jacqueline du Pré og við heyrðum brot úr undurfallegum tónverkum, meðal annars eftir Edward Elgar og Joseph Haydn.

Birt

5. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,