
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Rætt var um eldsneytisverð við Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Lög um tímabundna lækkun á virðisaukaskatti á olíu og bensín tóku gildi á föstudag, tilgangurinn er að vinna á verðbólgunni. Runólfur telur líklegt að aðgerðin heppnist en reiknar með verðhækkunum vegna ástandsins í Miðausturlöndum.
Um Jöfunarsjóð sveitarfélaga fara 107 milljarðar króna á ári. Um hann er m.a. veitt fjármunum til sveitarfélaga vegna grunnsólanna og málefna fatlaðra. Jöfnunarsjóðurinn er oft nefndur í umræðum um sveitarstjórnamál en líklegt er að einhverjir kunni ekki almennileg skil á starfseminni. Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður ráðgjafanefndar sjóðsins, sagði frá hlutverki hans.
Hvers vegna er Auður djúpúðga ýmist nefnd Auður, Unnur eða Uður í fornritunum? Að því vildi Haraldur Bernharðsson, prófessor í íslenskum miðaldafræðum, komast og rannsakaði málið. Skýringin felst í málþróun, líkt og hann rakti í viðtali, en nýlega birtist grein hans um efnið í bandarísku fræðiriti.
Tónlist:
Ég heyri vorið - Sextett Ólafs Gauks,
Tell me - The Rolling Stones.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.