Morgunvaktin

Drykkja eldra fólks, heimsmálin, færeyskur handbolti og Dolly

Í byrjun þáttar var stuttlega fjallað um Dolly Parton sem er áttræð í dag og leikin nokkur lög með henni.

Anna Björg Jónsdóttir, yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum, var fyrsti gestur. Hún segir of margt eldra fólk drekka of mikið. Afleiðingar þess séu slæmar. Hún hvetur fólk til draga úr drykkju. Áfengisneysla er eitt helsta umfjöllunarefnið á Læknadögum sem hefjast í dag.

Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, fór yfir nýjustu tíðindi í samskiptum Evrópuþjóða og Bandaríkjanna. Hann ræddi einnig við Snærós Sindradóttur um stjórnmál í Ungverjalandi en þar veruður kosið á vordögum.

Færeyska landsliðið hefur staðið sig vel á EM í handbolta. 6.000 Færeyingar fylgdust með liðinu leggja Svartfjallaland velli í gær. Uni Arge blaðamaður sagði frá stemningunni og uppgangi íþrótta í Færeyjum sem vakið hefur heimsathygli.

Tónlist:

In the good old days (when times were bad) - Dolly Parton,

I will always love you - Dolly Parton,

Light of a clear blue morning - Dolly Parton,

You can't make old friends - Dolly Parton og Kenny Rogers,

Morgindagar - Uni Arge,

Býarmynd - Uni Arge,

Here you come again - Dolly Parton.

Frumflutt

19. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,