Morgunvaktin

Veður og dönsk stjórnmál

Þrátt fyrir slæma kosningu fékk Mette Frederiksen í gær umboð konungs til mynda nýja ríkisstjórn í Danmörku. Bogi Ágústsson og Hallgrímur Indriðason fóru yfir kosningaúrslitin og rýndu í stöðuna. Bogi ræddi líka um kosningar í Færeyjum í dag og nýútkomna skýrslu, State of the Nordic Region.

Við fylgdumst vel með veðri og færð. Snemma í þættinum var rætt við Kristínu Hermannsdóttur veðurfræðing, og svo var slegið á þráðinn til Einars Á. Sæmundsen þjóðgarðsvarðar Þingvallaþjóðgarðar. Þar verður líklega ekki sála á ferli fyrri part dags vegirnir eru meira og minna lokaðir - en Einar býr í Biskupstungum.

Svo fjölluðum við stuttlega um Helga Helgason tónskáld og smið. Hann var stórmerkilegur maður og stofnaði meðal annars fyrstu íslensku hljómsveitina. Við heyrðum líka lögin hans Öxar við ána og Eyjafjörð.

Tónlist:

Guðrið Hansdóttir og Eivör Pálsdóttir - Træ.

Öll syngjandi kórbörn í Kársnesskóla - Vikivaki.

Stórsveit Reykjavíkur - Fjallkonan.

Karl Olgeirsson - Öxar við ána.

Liljukórinn - Eyjafjörður.

Lúðrasveit Reykjavíkur - Gardenparty.

Birt

26. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,