Morgunvaktin

Stríð og friður, skapandi greinar og sígild tónlist

Vonin um frið á jörð er býsna fjarlæg um þessar mundir. Svo virðist sem í stað þess allra leiða leitað til halda frið eða koma á friði þyki einfaldara eða betra - eða hvað það er - grípa til vopna. Við fjölluðum um frið og friðarfræði og friðarhugsjónina; Helga Þórólfsdóttir, fyrrverandi starfsmaður Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins, kom til okkar.

Við ræddum svo um skapandi greinar þegar Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs kom til okkar. Rætt var m.a. um atvinnumál, nýsköpun, og stefnu stjórnvalda í arkitektúr og hönnun, sem þykir framsækin og góð en við náum ekki alveg fara eftir.

Svo var það sígilda tónlistin, í dag fjallaði Magnús Lyngdal um óperuforleiki; tilurð og sögu, og við heyrðum tóndæmi úr sextándu-, sautjándu-, átjándu- og nítjándualda óperum.

Tónlist:

Skólakór Kársness, Jónas Ingimundarson - Senn kemur vor.

Gissur Páll Gissurarson, Sinfóníuhljómsveit Íslands - 05 La traviata (1853) : Lunge da lei...De miei bollenti spiriti.

Gunnar Gunnarsson - Breytir borg um svip.

Birt

6. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,