Þetta helst

Leiguþak yfir höfuðið

Það er dýrt búa á Íslandi, það vitum við öll. En er það of dýrt? Leigjendur segja markaðinn snargalinn, leigan hækkar bara og hækkar og endar varla saman. Húsnæðisöryggi þeirra er ótryggt með tilheyrandi áhrifum á líf þeirra og líðan og þetta gangi ekki lengur. Leigusalar segja aftur á móti leiguverð of lágt, framboð hafi ekki haldið í við eftirspurn og það jafnvel tilefni til hækka leigu enn frekar. Svo einfalt er það.

En eru uppi hugmyndir um leyfa markaðnum ekki ráða, heldur grípa inn í. Samtök leigjenda og formaður VR hafa talað fyrir leiguþaki eða leigubremsu til stemma stigu við vandanum og Flokkur fólksins hefur lagt fram frumvarp þess efnis. En hvað er leiguþak? Er það dæmt til mistakast eins og sumir vilja meina eða eina leiðin til leysa úr vanda þeirra 45.000 heimila sem eru á leigumarkaði?

Snorri Rafn Hallsson fjallar um stöðuna á leigumarkaði og hugmyndir um leiguþak í þætti dagsins.

Frumflutt

17. maí 2023

Aðgengilegt til

16. maí 2024
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,