Þetta helst

Snorri og banabiti NOMA

Andarhöfuð, hreindýraheilabúðingur, lifandi maurar, bjarnarkaramella og súkkulaðimosi. Þetta eru aðeins nokkrir af þeim réttum sem aldrei aftur verða í boði á matseðli hins heimsfræga veitingahúss Noma í útjaðri Kristjaníu í Kaupmannahöfn. Raunar er matseðillinn allur á útleið, því Noma er nefnilega loka í sinni núverandi mynd samkvæmt eigandanum og yfirkokkinum René Redzepi. Í tvo áratugi hafa Noma og René Redzepi verið leiðandi í svokallaðri nýnorrænni matargerð sem gengur út á nota norræn hráefni til tjá hreinleika, ferskleika og einfaldleika svæðisins. En á sama tíma hafa svona veitingastaðir verið gagnrýndir fyrir eitrað vinnuumhverfi. Snorri Rafn Hallsson fjallaði í janúar um meint endalok NOMA og stjörnukokkinn René Redzepi.

Frumflutt

1. sept. 2023

Aðgengilegt til

31. ágúst 2024
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,