Þetta helst

Vera og dularfulla morðmálið

Birgitte Tengs var sautján ára gömul þegar hún fannst látin í kjarrgróðri við vegkant, skammt frá heimili sínu á Karmøy í sunnanverðum Noregi, í maí 1995. Hún hafði verið myrt. Í hönd fór ein umfangsmesta lögreglurannsókn norskrar sögu. Frændi Birgitte var dæmdur fyrir morðið en síðar sýknaður, meðal annars þökk vitnisburði Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings. Morðið á Birgitte telst því óleyst í meira en aldarfjórðung og hefur orðið eitt af alræmdustu glæpamálum norskrar sögu, orðið innblástur heimildaþáttum, hlaðvörpum og sjónvarpsseríum. hefur dregið til tíðinda í málinu, en norsk yfirvöld tilkynntu nýverið búið væri ákæra mann fyrir morðið. er einnig sakaður um annað morð á ungri konu. Vera Illugadóttir skoðaði vendingar í þessu dularfulla máli. Þátturinn var áður á dagskrá í október.

Frumflutt

6. sept. 2023

Aðgengilegt til

5. sept. 2024
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,