Þetta helst

Morðið á Emilie Meng

Lögregluyfirvöld í Danmörku hafa ákært 32 ára karlmann fyrir morð og nauðgun á hinni 17 ára Emilie Meng. Emilie hvarf sporlaust þann 10. júlí árið 2016 þar sem hún var á leið heim frá lestarstöðinni í heimabæ sínum Korsør eftir hafa verið úti skemmta sér um kvöldið. Ekkert spurðist til Emilie fyrr en á aðfangadag 2016, 168 dögum eftir síðast sást til hennar, fannst hún í stöðuvatni tæpa 70 kílómetra frá heimili sínu. Þar hafði hún líklega legið frá því nóttina sem hún hvarf. Augljóst var brotið hafði verið gegn henni. Rannsókn málsins gekk illa en óskýrar upptökur úr öryggismyndavél leiddu lögregluna loks á spor morðingjans. Snorri Rafn Hallsson skoðar morðið á Emilie Meng.

Frumflutt

5. maí 2023

Aðgengilegt til

4. maí 2024
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,