Þetta helst

Minnsti og mest pirrandi Íslendingurinn kominn á stjá

Náttúruvísindamenn hafa uppgötvað og skráð meira en þúsund tegundir lúsmýs. Þetta eru agnarsmá kvikindi, en ást okkar til þeirra er þó ennþá minni. Samt gerir mikill meirihluti þessarra þúsund tegunda manneskjum ekki neitt. En þær fáu sem gera það, bæta upp fyrir skaðleysi hinna. Við vitum ekki hvenær þau komu fyrst til landsins, en árið 2015, þegar vísindamenn voru búnir skrá hér sex tegundir, allar meinlausar, gerði sjöunda vart við sig. Og það er eiginlega ekki hægt flýja hana. Og það þýðir lítið eltast við jarðar- eða sumarbústaðakaup á þeim svæðum þar sem þessi litla vera hefur enn ekki drepið niður fótum, því hún er dreifa sér um allt landið og hún er gera það hratt. Fasteignasali segir við verðum bara breyta hegðun okkar og lifa með henni. Sunna Valgerðardóttir fjallar um minnsta og mest pirrandi Íslendinginn, lúsmýið, í þætti dagsins.

Frumflutt

20. júní 2023

Aðgengilegt til

19. júní 2024
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,