Þetta helst

Þjóðhetjan og stríðsglæpamaðurinn frá Ástralíu

Helsta stríðshetja Ástrala, faðir ársins, stríðsglæpamaður. Ástralski hermaðurinn Benjamin Roberts-Smith er ekki allur þar sem hann er séður. Hann myrti óbreytta borgara í Afganistan á árunum 2009 til 2012. auki fyrirskipaði hann aftökur án dóms og laga, hafði uppi hótanir gegn samstarfsmönnum sínum og réðst á óbreytta Afgana svo skerast þurfti í leikinn. Þetta staðfesti dómstóll í Sydney í upphafi mánaðar þegar meiðyrðamáli Roberts-Smith gegn þremur blaðamönnum sem greindu frá stríðsglæpum hans árið 2018 var vísað frá á grundvelli þess þeir hefðu sagt satt og rétt frá misgjörðum hermannsins fyrrverandi.

Fréttirnar skóku Ástralíu og þykir sigur blaðamannanna mikilvægur fyrir fjölmiðlafrelsi í landinu. Rannsóknir standa yfir á öðrum stríðsglæpum og svo gæti farið Roberts-smith verði fangelsaður fyrir glæpi sína.

Snorri Rafn Hallsson segir frá málinu í þætti dagsins

Frumflutt

13. júní 2023

Aðgengilegt til

12. júní 2024
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.

Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir

Þættir

,