Lestin

Leyft öllum aldurshópum

Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF

Um eitt þúsund Íslendingar mættur í stóra sal Háskólabíós í vikunni til að berja hjartaknúsarann og kúltúrbarnið Alexander Skarsgaard augum, en hann er heiðursgestur á RIFF. Þrátt fyrir tæknilega örðugleika við sýningu myndar hans The Wicker var stemningin eldheit. Gagnrýnendur Lestarinnar rýna í myndina, auk þess sem Lucy Lost, Teenage Sex and Death at Camp Miasma og The Loneliest Man in Town verða teknar fyrir.

Um svipað leyti og samfélagsmiðillinn TikTok var að nema land á vesturlöndum, þá var að verða til í heimalandi miðilsins nýtt form kvikmyndagerðar, sérstaklega þróað til að fanga athygli fólks á snjallsímaskjánum. Þetta var árið 2018 og Duanju nefndist þetta nýja form, leiknar seríur með örstuttum þáttum, yfireitt í kringum tvær mínútur. Nú er fyrsta íslenska örþáttaröðin fyrir síma komin til sögunnar. Við ræðum við Unnar Stein Sigurðsson um þættina sem nefnast Skólinn.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,