• 00:00:46Gummi Emil í köldum potti
  • 00:19:32Besta leikkona í aðalhlutverki
  • 00:32:32No Other Land

Lestin

Gummi Emil í köldum potti, No Other Land, Pálmi sér loks Poor Things

Við byrjum í bakgarðinum hjá líkamsræktarfrömuðinum Guðmundi Emil sem hefur vakið athygli fyrir áhugaverð myndbönd á samfélagsmiðlum. Og þar höldum við áfram velta fyrir okkur víkingum og tilhneigingu ungs fólks til líta til fortíðar eftir svörum við vandamálum nútímans.

Pálmi Freyr Hauksson var staddur á ferðalagi í Marokkó og átti í stökustu vandræðum með sjá kvikmyndina Poor Things til geta fjallað um hana í Óskarsyfirferð Lestarinnar. hefur hann hins vegar séð myndina, og í dag fer hann yfir flokkinn Besta leikkona í aðalhlutverki.

No Other Land nefnist heimildarmynd sem var frumsýnd á Berlinale kvikmyndahátíðinni núna í febrúar. Hún er framleidd af palestínskum og ísraelskum kvikmyndagerðarmönnum, og fjallar um hernumið fjallaþorp á Masafer Yatta svæðinu á Vesturbakkanum. Myndin hefur vakið mikið umtal í kjölfar frumsýningarinnar, ekki síst vegna ræðu sem aðstandendur hennar fluttu þegar þeir tóku á móti verðlaunum fyrir bestu heimildarmynd á hátíðinni en myndskeið af þessari ræðu hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum nýverið.

Frumflutt

6. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,