Við heyrum um sögu greindarprófa og tilraunum til að mæla gáfur fólks í pistli Einars Más Jónssonar í dag. Hann veltir fyrir sér hvernig sumir valdamestu menn heims, forstjórar tæknirisanna í Ameríku, eru farnir að leggja síaukna áherslu gáfur sem mælikvarða á manngildi.
Við ætlum kíkja í Skeifuna og heimsækja nýtt heimili Havarí. Undanfarin sautján ár hefur það verið regnhlíf utan um allt það sem Berglind Häsler og Svavar Pétur Eysteinsson heitinn, eða Prins Póló, hafa tekið sér fyrir hendur. Plötuútgáfu, plötusölu, myndlistarsýningar, matvælagerð, rekstur gistiheimilis, tónleikastaðar, framleiðslu á peysum og plakötum og svo framvegis. Berglind hefur haldið nafni Havarís gangandi eftir að Svavar Pétur lést árið 2022. Við rifjum svo upp gamalt viðtal úr Lestinni við Svavar, sem hefði orðið 49 ára í gær.
Birt
27. apríl 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.