Annað líf Tatjönu, Föðurland, Frakkar mótmæla
Fyrir helgi kom út platan Líf 2. Tónlistarkonan Tatjana Dís hefur getið sér gott orð á undanförnum árum með hljómsveitunum Digital Ísland og Ex Girls en stígur hér fram í fyrsta sinn…
Björk Guðmundsdóttir og James Merry opnuðu um helgina sýningu í Listasafni Íslands, Echolalia og Ummyndlingar. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og stendur yfir fram á haust. Við fáum Björk í heimsókn og ræðum við hana um samstarfið við James, sköpunarferlið, umhverfisbaráttu og gervigreind.
Svo fáum við heyra nýtt lag með Skröttum, Stressed, og pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem er að þessu sinni að rífast um liti.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.