Lestin

Leyft öllum aldurshópum

Sheeran í klípu, heimsendi frestað, Fuglar (og menn), No Rest for the Wicked

Stormur hefur geysað í kring um Ed Sheeran á dögunum eftir að rapparanum Macklemore var sparkað út úr tónleikaferðalagi þar sem hann átti að hita upp fyrir Sheeran. Netheimar hafa logað síðan og nýjar vendingar virðast verða í málinu á hverjum degi. Við förum yfir atburðarásina og veltum fyrir okkur tjáningarfrelsinu, völdum milljarðamæringa og hvort tími hinna ópólitísku poppara sé liðinn.

Rómantíski hryllingurinn No Rest for the Wicked gerist í færeyjum 1862 og fjallar um ástir sjómanns frá eyjunum og Dana. Þetta er ein stærsta og metnaðarfyllsta færeyska kvikmyndaframleiðslan til þessa, unnin í samstarfi Færeyinga, Dana og Íslendinga. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina og einnig heimildarmyndina Fuglar og menn en myndin er tekin upp í loðmundarfirði, en á hverju ári í þrjá mánuði safnast í þeim afskekkta firði tólf þúsund fuglar og fimm manneskjur.

Forstjórar nokkurra helstu gervigreindarfyrirtækja heims hafa kallað eftir sameinuðu átaki í að hægja á þróun gervigreindar til að tryggja öryggi mannkyns. Fréttir af gervigreindarmódelum sem láta ekki af stjórn hafa vakið athygli, og innanbúðarmenn sem hafa spáð því að 10% líkur séu á að gervigreind muni ganga að mannkyninu dauðu innan áratugar. Við berum þessa spádóma undir Kristinn R. Þórisson prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnanda Vitvélastofnunar íslands.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,