Lestin

Dauði sjónvarpsfréttanna, leitað að stæði

Við kynnum nýjan liðsmann í Lestinni. Fríða Þorkelsdóttir mun leysa Lóu af næstu vikurnar.

Hún kíkti upp í Kópavog um helgina, en þar er mikið um vera þessa dagana - Hamraborg Festival fer fram í sjötta sinn. Listakonan Silfrún Una Guðlaugsdóttir segir frá gjörningi sínum sem fram fór í bílakjallara í Hamraborginni en þar bauð hún upp á bíladans, tónlist, öskrandi hljólreiðafólk og labradora, meðal annars.

Við veltum svo fyrir okkur stöðu fjölmiðla. Í kvöld fer í loftið síðasti kvöldfréttatími Sýnar - eða Stöðvar 2 eins og hún hét lengi. Það eru rétt tæp 40 ár frá því stöðin hóf sjónvarpa fréttum og hefur verið mikilvægur hluti af íslensku fjölmiðlalandslagi. En verður slökkt á myndavélunum, Hvað segir þetta um stöðu fjölmiðlunar og blaðamennsku á Íslandi í dag, geta hlaðvörp og vefmiðlar tekið keflinu og hvað þýðir þetta fyrir lýðræðið og samfélagslega umræðu í landinu. Við ræðum við Eyrúnu Magnúsdóttur og Eirík Hjálmarsson.

Birt

31. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,