Lestin

Lionel Messi, Our hero Balthazar og bókaklúbbur: Lausaletur

Vikulegur bókaklúbbur Lestarinnar í Júní tekur fyrir nýjustu skáldsögu Þórdísar Helgadóttur, Lausaletur, sem kom út fyrir síðustu jól. Aðalpersónurnar er starfsfólk á prentsafni í ónefndri borg í miðjum heimsfaraldri, þar sem dularfull heilabilun herjar á fólk. Sölvi Halldórsson, skáld, er gestur bókaklúbbsins.

Senn lýkur riðlakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu karla sem fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Einhver allra besti knattspyrnumaður sögunnar, Lionel Messi, hefur skorað 5 mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu - þrátt fyrir vera orðinn 39 ára gamall. Halldór Armand Ásgeirsson reynir setja fingurinn á snilligáfu Messi.

Kolsvarta komedían Our hero Balthazar sem er sýnd í Bíó Paradís tekst á við stór og alvarleg málefni eins og byssuofbeldi og samfélagsmiðla. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina.

Birt

25. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,