Lestin

Gullöld norskra kvikmynda, ævintýri Lóu á Grænlandi

Sögulega hefur norsk kvikmyndagerð staðið í skugganum af því sem hefur verið framleitt í nágrannalöndunum. Danskir og sænskir leikstjórar hafa í gegnum alla kvikmyndasöguna verið með þeim virtustu og mest spennandi, snillingum miðilsins - en Norðmenn hafa frekar þótt púkó. undanförnu hefur gróskan þó færst í auknum mæli til Noregs. Raunar stendur norsk kvikmyndagerð í svo miklum blóma það er farið tala um gullöld norskra kvikmynda og sjónvarpsþátta. Toppurinn á þeim ísjaka eru níu tilnefningar til óskarsverðlauna sem kvikmyndin Affeksjonsverdi eftir Joachim Trier hlaut á dögunum. Er þetta bara olíupeningurinn, eða eru Norðmenn gera eitthvað annað rétt? Við ræðum við Grímar Jónsson, kvikmyndaframleiðanda um gullöld norskra kvikmynda.

Við heyrum svo um ævintýri Lóu Bjarkar á Grænlandi, en hún fór þangað í lok janúar til taka púlsinn á grænlensku þjóðarsálinni eftir hótanir Bandaríkjaforseta um taka yfir landið. Við heyrum brot úr þáttunum Elsta land í heimi sem hún vann ásamt Pétri Magnússyni um heimsóknina.

Birt

10. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,