Þú hittir okkur á mjög kínverskum tíma í lífi okkar, kæri hlustandi. Kína er út um allt þessa dagana, Barnið þitt leikur sér með Labubu, vinsælasta teiknimynda allra tíma er hin kínverska Ne Zha 2, æ fleiri Íslendingar keyra rafbíla frá Kína, og hvað er málið með þessi dansandi vélmenni í nýárssýningu kínverska kommúnistaflokksins?
Lestin í dag er tileinkuð Kína, við ræðum við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum og þvermenningarlegri heimspeki við Háskóla Íslands.
Birt
18. feb. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.