Helsta uppskeruhátið amerískra kvikmyndabransans, Óskarsverðlaunahátíðin var haldin í Los Angeles í nótt, í 98 skipti. Stóru fréttirnar af hátíðinni eru þær að One Battle after Another, mynd Paul Thomas Anderson, var verðlaunuð sem besta myndin, fyrir bestu leikstjórn, og besta aðlagaða handritið. Vampíru-períóðu-tónlistarmyndin Sinners í leikstjórn Ryan Coogler fékk fjóra óskara Besta aðalleikona var Jessie Buckley fyrir Agnesi í Hamnet, og aðalleikari var Michael B. Jordan fyrir túlkun sína á tvíburunum í Sinners. Til þess að fara yfir þetta allt og meira hringdi Lóa í mikinn áhugamann um óskarsverðlaunin Samúel Lúkas, sem er kvikmyndaleikstjóri búsettur í Berlín.
Við heyrum líka um þýska heimspekinginn Jürgen Habermas, sem lést um helgina. Hann var orðinn 96 ára og skrifaði bækur nánast þar til yfir lauk. Hann var einn af risunum í evrópskri heimspeki á seinni hluta 20. aldar. Hann var bjartsýnismaður sem trúði á skynsemi mannsins og möguleika okkar til að eiga í rökræðum í almannarýminu . Og hann reyndi að teikna upp hvaða kjöraðstæður þyrftu að vera til staðar til að við gætum rætt skynsamelga saman. Vilhjálmur Árnason segir frá helstu kenningum Habermas.
Birt
16. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.