Nokkrir kennarar við Menntaskólann við Sund taka sig til og skipuleggja hinn fullkomna glæp, þeir ætla að ræna nemendafélagið. Það er grunnhugmyndin í nýjum íslenskum grínþáttum Hæst á Sjónvarpi Símans. Sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar Brynja Hjálmsdóttir rýnir í þættina.
Við fræðumst um nýja íslenska hljóðbókaveitu, Sagnaland, sem ætlar að borga rithöfundum betur en samkeppnisaðilinn Storytel, ekki að fara í samkeppni við forlögin og ekki leyfa neina gervigreindarlesara á veitunni.
Á sunnudag eru 40 ár frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl. Við ræðum hina mögnuðu bók, Tsjernobyl-bænin eftir Svetlönu Aleksíevítsj sem kom út árið 2021 í íslenskri þýðingu Gunnars Þorra Péturssonar.
Birt
21. apríl 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.