Lestin

Alda Music og Rás 2 í gervigreindarstorminum, Tár úr steini

Í lok október var tilkynnt Universal Music Group hefði fallið frá lögsókn sinn gegn gervigreindarfyrirtækinu Udio sem hefur haldið úti einu vinsælasta spunagreindarforritinu á sviði tónlistar. Um leið og málið var látið niður falla tilkynntu fyrirtækin tvö þau ætluðu í samstarf. Á næsta ári mun koma út forrit þar sem notendur geta búið til gervigreindartónlist, en tónlistin sem notuð til kenna gervigreindinni verður ekki illa fengin, heldur notuð með leyfi rétthafanna og þeir munu þá hluta af ágóðanum. Íslenska útgáfufyrirtækið Alda Music er hluti af Universal Music Group og við spyrjum framkvæmdastjórann, Sölva Blöndal, um það hvort íslensk tónlist yrði hluti af þessu verkefni.

á dögunum fór inn á spilunarlista Rásar 2 lag sem var samið með spunagreind. Við ræðum við Matthías Már Magnússon, dagskrárstjóra, um áskoranirnar sem útvarpsstöðvar standa frammi fyrir á tímum gervigreindartónlistar.

Svo ræðum við við leikstjóran Hilmar Oddsson um kvikmyndina Tár úr steini sem verður sýnd í Bíó Paradís um helgina. Myndin fjallar um Jón Leifs, tónskáld, og líf hans með Annie Leifs, dætrum þeirra Snót og Líf, á tímum nasismans í Þýskalandi.

Frumflutt

20. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,