Lestin

Snjallsími góða fólksins, hýr illmenni í hundrað ár, goth Atlanta rapp

Aðstæður verkafólks í Kína, kolefnisfótspor, barnaþrælar í kóbaltnámum í Kongó. Það er ýmislegt sem hönnuður siðferðilega þolanlegs snjallsíma þarf hafa í huga. er í fyrsta skipti hægt kaupa siðlega snjallsímann, snjallsíma góða fólksins, Fairphone, á Íslandi. Við pælum í snjallsímum og siðferði með Bjartmari Oddi Þey Alexanderssyni blaðamanni.

Í dag, 16. Október á Disney fyrirtækið 100 ára afmæli. Við ætlum halda upp á það í þættinum í dag og rifja upp þætti fyrrum lestarstjórans Önnu Marsý frá árinu 2021 - Veröldin hans Walts. Í þriðja þætti í seríunni ræddi hún við Sigríði Jónsdóttur, sérfræðing á leikminjasafni Íslands og leikhúsgagnrýnanda Fréttablaðsins. Þær íhuga Disney illmenni, sem virðast öll, þegar betur er gáð, meira og minna hinsegin.

Við spjöllum við rapparana Suavi Gualla og Lil Lowlife frá Atlanta, höfuðborg rappsins um þessar mundir, um stemninguna þar í borg, borið saman við nýja heimili þeirra Los Angeles. Þórður Ingi Jónsson ræðir við þessa meðlimi tónlistarhópsins Ball Hogg Records sem notið hefur mikillar athygli í heimi neðanjarðarrapps undanfarið.

Frumflutt

16. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,