Menning fólks frá rómönsku Ameríku er að verða stöðugt meira áberandi í Reykjavík, það eru æ fleiri veitingastaðir sem bjóða upp á mat frá álfunni, tónlistarviðburðir og danspartý. Og nú í dag hefst í fjórða sinn rómansk Ameríska kvikmyndahátíðin í Bíó Paradís. Það eru fimm myndir sýndar frá fimm löndum en allar eftir konur. Við fáum til okkar skipuleggjendur hátíðarinnar, þau Hugo Llanes og Taniu Zarak.
Í gamla húsi Tryggingarmiðstöðvarinnar á Laugavegi 114 hefur verið opnuð ný listamannarekin verslun sem heitir 114, eftir húsnúmerinu. Það sem gerir búðina sérstaka er að vörurnar sem þar eru til sölu eru mestmegnis framleiddar á staðnum og gestir geta jafnvel fylgst með handverksfólki skapa þær í rýminu, allt frá fatnaði og fylgihlutum til ilmvatna. Húsið er núna, eins og margir þekkja, kallað Hlemmur Haus og er undirlagt af alls kyns skapandi einstaklingum. Bræðurnir Rik og Ross McNair stofnuðu verslunina en þeir vinna einnig í húsinu undir nafninu Endurtakk. Verslunin þjónar þeim tilgangi að vera sá hluti þessa skapandi samfélags sem opnast út á götuna og býður fólki inn. Við spjöllum við Maddý Hauth, framkvæmdastýru Hlemms Haus um búðina.
Svo er það matur. Í síðustu viku fjallaði Björn Teitsson um sjónvarpsmanninn og rokkstjörnukokkinn Anthony Bourdain. Og hann ætlar að halda áfram að pæla í matarmenningunni út frá hugðarefnum Bourdain - það hvernig matur tengir fólk, En nú veltir hann því fyrir sér hvar og hvernig við verslum í matinn í samtímanum. Kaupmaðurinn á horninu og heimsending, kemur við sögu.
Og svo heyrum við um Ísraelsku heimildarmyndina NAZA sem hefur vakið hörð viðbrögð í heimalandinu.
Birt
15. sept. 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.