Lestin

Queer Situations, bylting frjálshyggjunnar, Apex og Michael

Hinsegin bókmenntir, langborðsumræður, fræðadagskrá og fjölbreyttur hópur alþjóðlegra höfunda, er það sem gestir bókmenntahátíðarinnar Queer Situations geta átt von á í næstu viku. 14.-17. maí fer hátíðin fram í annað sinn, og þær Eva Rún Snorradóttir og Halla Þórlaug Óskarsdóttir, skipuleggjendur, eru gestir Lestarinnar í dag.

Kolbeinn Rastrick rýnir í tvær nýjar bíómyndir, Apex í leikstjórn Baltasars Kormáks, sem skartar Charlize Theron í aðalhlutverki, og Michael, nýja myndin um poppstjörnuna Michael Jackson.

Einar Már Jónsson, sagnfræðingur, flytur pistil um byltingu frjálshyggjunar og hvernig hugmyndir Antonio Gramsci höfðu þau áhrif Ayn Rand, Milton Friedman og Friedrich Hayek, voru gerð spámönnum þeirrar hugmyndafræði.

Birt

7. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,