Lestin

Ritlistarfnykur og grískir harmleikir

Lestin í dag er mestu lögð undir umræður um stíl í bókmenntum, svokallaðan ritlistarstíl sem sumir telja sig geta greint í bókum fólks sem er menntað í skapandi skrifum í Amerískum háskólum.

Við fáum innlegg frá Eiríki Erni Norðdahl sem reynir setja fingurinn á þessa fagurfræði, og svo höldum við áfram með rithöfundunum Þórdísi Gísladóttur og Fríðu Ísberg og reynum setja umræðuna í skandinavískt og íslenskt samhengi. Það eru tæplega 20 ár frá því byrjað var kenna skapandi skrif í Háskóla Íslands, og við ætlum velta því fyrir okkur hvort og þá hvernig þetta nám hefur haft áhrif á íslenskt bókmenntalíf.

Undir lok þáttarins hringjum við svo til Kýpur og spjöllum við Övru Sidiropoulou prófessor í leikhúsfræðum um gríska harmleiki. Þessi forna leikhúsgrein nýtur ennþá vinsælda og virðingar en í gær hlaut uppsetning Þjóðleikhússins á Óresteiu eftir Æskilos og í leikstjórn Benedict Andrews flest verðlaun á Grímuhátíðinni.

Birt

27. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,