Lestin

Næsta stríð Ásgeirs

Það er 20. ágúst og í dag fagnar Lestin fimmtudagsafmæli góðvinar þáttarins, ljóðskáldsins og menningargagnrýnandans Ásgeirs H. Ingólfsson.

Ásgeir lést eftir skammvinn veikindi í byrjun síðasta árs og hefur skilið eftir sig skarð í íslensku menningarlífi. Hann fjallaði reglulega um kvikmyndir og bækur í hina ýmsu prent- og vefmiðla, ekki síst á bloggsíðunni sinni Menningarsmygl. Hér á Rás 1 var hann verið með árlega pistla frá kvikmyndahátiðunum í Berlín og Karlovy Vary í Tékklandi - en þar í landi bjó hann undanfarinn áratug.

En Ásgeir var einnig skáld og í tæka tíð fyrir afmælið er komin út þriðja ljóðabók Ásgeirs, Næsta stríð, og á morgun verður veisla, útgáfuhóf, bíósýning, ljóðakvöld til heiðurs honum í Bíó Paradís.

Við ræðum um hugsjónir og list Ásgeirs H. Ingólfssonar við tvo vini hans Val Gunnarsson og Jón Bjarka Magnússon.

Birt

20. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,