Draumaríngl og kuðungar
Draumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði;…
Lagið Midnight Sun með Zöru Larsson kom út í fyrra á samnefndri plötu, en nýtur enn þvílíkra vinsælda þetta sumarið. Við kryfjum þetta lag sænsku poppprinsessunar undir dyggri leiðsögn Friðriks Margrétar Guðmundssonar.
Svo fáum við pistil sendan með flugi frá París, Einar Már Jónsson, rithöfundur, segir frá merkum manni. Marc Bloch var afkastamikill fræðimaður en á miðjum aldri tók hann svo þátt í frönsku andspyrnuhreyfingunni. Hann á sér því merka ævi sem Einar Már rekur í þætti dagsins.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.