Lestin

Twitter ömurlegt, rekinn vegna skopmyndar um Gaza, Stop making sense

Prófessor í blaðamennsku við Stokkhólmsháskóla er staddur á Íslandi. Tilefnið er erindi hans um kaup Elon Musk á samfélagsmiðlinum Twitter í Háskóla Íslands, 'Elon Musk, goðsagnir um málfrelsið og daður við öfga-hægrið.' Við ræðum allar þær ólíku birtingarmyndir þess hversu lélegt og ömurlegt Twitter er orðið við Christian Christensen, og hvernig það hefur mögulega áhrif á upplifun okkar af stríðinu í Ísrael og Palestínu.

Steve Bell hefur starfað í rúmlega 40 ár fyrir The Guardian en hefur núna misst vinnuna eftir hafa deilt mynd á samfélagsmiðlum sem hann fékk ekki birta í blaðinu, mynd sem ritstjórar blaðsins álitu notaðist við and-gyðinglegar klisjur. Við fengum Halldór Baldursson, skopmyndateiknara, til kíkja á myndina með okkur.

Í desember 1983 hélt hljómsveitin Talking Heads tónleika í Hollywood?s Pantages Theater. Tónleikarnir voru teknir upp og gefnir út sem tónleikakvikmynd, Stop Making Sense. Myndinni var leikstýrt af Jonathan Demme sem átti síðar eftir gera The Silence of the Lambs og Philadelphia en myndin er talin sem ein allra besta tónleikamynd sögunnar. Í tilefni af því 40 ár er frá tónleikunum verður nýuppgerð útgáfa af myndinni sýnd í Bió Paradís í vikunni. Davíð Roach Gunnarsson fjallaði um hana í Lestinni árið 2020 þegar mánuður var liðinn af samkomubanni vegna heimsaraldurs og Davið farinn sakna lifandi tónleika.

Frumflutt

17. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,