Lestin

Iceland Noir sniðgengin, Trúbadorinn Stella Haux, Drif á Lækjartorgi

Við förum yfir menningarátökin sem standa yfir í bókmenntaheiminum. Þar er verið ræða hvort rithöfundar eigi sniðganga Iceland Noir, glæpasagnahátíð í Reykjavík, vegna þátttöku Hillary Clinton, fyrrum forsetaframbjóðanda og fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á hátíðinni. Stríðið á Gaza og afstaða Hillary Clinton til vopnahlés er ástæðan fyrir því nokkrir hafa ákveðið taka ekki þátt í ár. Er bókmenntahátíð vettvangur fyrir pólitísk átök og er Hillary Clinton meira en bara umdeild?

Á morgun hefði Stella Haux, Guðný Stella Hauksdóttir, orðið sjötug. Rauðsokka, verkalýðsbaráttukona, trúbador, Stella var eldheit baráttukona. Á morgun verður hennar minnst á tónleikum á Dillon, í tilefni sjötugsafmælisins. Dagný Krisjtánsdóttir, prófessor emerítus í Íslenskum nútímabókmenntum, var vinkona hennar. Hún kom í Lestina og sagði frá Stellu.

Danstónlistarútvarpið Drif hefur haldið út metnaðarfulli dagskrá allar helgar frá því í sumar. Heimili stöðvarinnar er í Hljómturninum á Lækjartorgi en þar þeyta plötusnúðar skífum og streymt er beint frá turninum á Yotutube. Atli James, betur þekktur sem Jamesendir, tekur á móti okkur í Hljómturninum og segir frá Drifinu og stöðunni í íslensku raftónlistarlífi.

Frumflutt

16. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,