Lestin

Vallarvörður sendur úr landi, Hreyfing hermir eftir, Ísafjarðar-PIFF

Við byrjum niðri í Laugardal þar sem við röltum í vindi og örlítilli snjókomu um íþróttasvæði Þróttar með vallarverðinum Isaac Kwateng, 28 ára Ganamanni. Isaac, sem hefur spilað fótolta með SR, varaliði Þróttar, og verið virkur í starfi félagsins nokkur undanfarin ár, verður öllu óbreyttu sendur úr landi á mánudag.

Við fáum kíkja í heimsókn í hljóðver glænýrrar hljómsveitar. Hljómsveitin Hreyfing er skipuð þeim Elíasi Geir Óskarssyni (úr Inspector Spacetime) og Baldri Skúlasyni (úr Sameheads) og á fyrstu plötu þeirra herma þeir eftir völdum augnablikum úr danstónlistarsögunni

Í dag hefst kvikmyndahátíðin Pigeon International Film Festival, sem fer fram núna um helgina. Júlía Margrét Einarsdóttir ræddi við Steingrím Rúnar Guðmundsson, Denna, sem er einn skipuleggjenda hátíðarinnar.

Frumflutt

12. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,