Lestin

Glimmer sem mótmæli, jólatónlist, Andkristnihátið

Á föstudag létu mótmælendur rauðu glimmeri rigna yfir Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra til andmæla afstöðuleysi ríkisins gagnvart framferði Ísraelshers á Gaza. Við pælum í glimmeri, eggjum, skóm og öðrum hlutum sem mótmælendur hafa kastað í stjórnmálafólk í gegnum tíðina.

Lestin er komin í jólaskap og ætlar velta fyrir sér nýjum og sígildum jólalögum. Iceguys, Prettyboichocco og Laddi koma meðal annars við sögu.

Þungarokkshátíðin Andkristni hefur farið fram í kringum jólin frá árinu 2000. Við ræðum við einn aðstandendanna, Viktor Árna Veigarsson, sem tekur þátt í skipulagningunni í fyrsta skipti ár.

Frumflutt

11. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

Þættir

,