Að venju eru margir að velta fyrir sér píslarsögu Jesú Krists nú á föstunni. Píslarsagan er rakin í guðspjöllum nýja testamentisins þar sem er sagt frá innreið Jesú í Jerúsalem, handtöku hans, dauðadómi, líkamlegum og andlegum pyntingum og krossfestingu. Saga sem flestir þekkja á yfirborðinu - en hefur þó verið frjór vettvangur fyrir trúarlegar, heimspekilegar og bókmenntalegar vangaveltur í um tvö þúsund ár. Sigurvin Lárus Jónsson, prestur og nýja-testamentsfræðingur, pælir með okkur í píslarsögunni.
Við fáum svo pistil frá Einari Má Jónssyni í París en að þessu sinni veltir hann fyrir sér líkindum nútímans við millistríðsárin, og lýsir hressilegum dansi litla-Hitlers og litla-Stalíns.
Birt
3. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lestin
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.