Lestin

Sagan af Jason Arday

Jason Arday átti sér ævintýralega sögu, sonur Ganískra innflytjenda í Bretlandi sem var á einhverfurófi, lærði ekki tala fyrr en 11 ára og lesa 18 ára - en var orðinn yngsti svarti prófessor Cambridge háskóla fyrir fertugt.

Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið fjallað ítarlega og stundum heiftúðlega í breskum fjölmiðlum um Arday en hann var sakaður um ritstuld og hafa ýkt eða logið ýmsu um eigin ævi. Hann varð skotspón í menningarstríðum Bretlands um kynþætti og háskólamenntun, einhver umtalaðasti og umdeildasti maður landsins.

Um helgina bárust svo þær fréttir hann væri látinn, hefði fallið fyrir eigin hendi.

Við ræðum við Gauta Sigþórsson sem hefur starfað í rúma tvo áratugi í bresku háskólaumhverfi um Jason Arday.

Birt

18. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,