Lestin

Samfélag ólæsra, Anthony Bourdain og Tilboð mánaðarins

Það er alþjóðlegur dagur læsis. Læsi er í þó nokkurri útrýmingarhættu en bara rétt rúmlega helmingur íslenskra unglinga býr yfir grunnhæfni í lesskilningi. Við veltum fyrir okkur hvers konar samfélag tekur við þegar lestur og bækur hætta skipta máli, það sem á ensku er kallað post-literate samfélag.

Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir hafa skapað öðruvísi leikhúsupplifun í Tjarnarbíói undir yfirskriftinni Tilboð mánaðarins. Í stað hefðbundinna uppsetninga er hér á ferðinni leiklestur og miðinn kostar bara 2000 krónur. Í kvöld mun Hjörtur Jóhann Jónsson, leikari, lesa fyrsta verk Tyrfings Tyrfingssonar, Grande.

Næstu vikur ætlum verður matargerðarlist í Lestinni á þriðjudögum. Björn Teitsson ætlar flytja okkur pistlaröð um matarmenningu, hvernig við njótum og neytum matar og matartengds menningarefnis í samtímanum. Í fyrsta pistlinum fjallar hann um kokkinn og sjónvarpsmanninn Anthony Bourdain heitinn, sem var mikil rokkstjarna meðal matarperra. Nýlega kom út kvikmyndin Tony sem byggir á ævi hans og endurminningum.

Birt

8. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Lestin

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,