
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Tölvunördar leika sér nú að því sameina tvo ólíka tölvuleiki með nýrri tækni. Aðferðin felst í að afbyggja leikina (e. reverse engineer) og byggja þá svo upp aftur sem einn leik. Þetta þótti áður óhugsandi en með tilkomu gervigreindar getur hver sem er gert tilraunir heiman frá. Ljóst að þessi tækni getur afbyggt ýmis forrit og komið þeim upp annars staðar með breytingum. Nú hefur opnast fyrir möguleika sem ekki var fyrirséður.
Við fáum Gunnar Arnar Sigmundsson, netöryggissérfræðing, til að ræða málið við okkur.
Birgitta Björg færir okkur sinn síðasta pistil um einkarýmið. Hún hefur í pistlaröð sinni fjallað um bíla, farsíma og heyrnartól en snýr sér nú að sundlaugum.
Á laugardaginn fara fram stórtónleikar Queens of The Stone Age í Laugardalshöll. Löngu uppselt er á tónleikana enda er sveitin eitt vinsælasta rokkband síðari ára. Lestin ræddi við adáanda hljómsveitarinnar Daða Jónsson.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.